Allt undir! - Lottó og fjárhættuspil í Kína
Kína hefur löngum háð stríð gegn ólöglegum fjárhættuspilum í landinu, þrátt fyrir að eiga að baki töluvert langa sögu löglegra fjárhættuspila: fyrsta tegundin kom fram fyrir um það bil 3.000 árum síðan, og fyrstu ríkislottóin voru haldin á tímum Tang keisaraættarinnar. Er hrifningin af þessum áhættuspilum eykst, verður Kína að íhuga þann möguleika að auka frelsi leikjaiðnaðarins eða herða enn meira á þeim ólöglegu.
Í langan tíma voru fjárhættuspil talin meinlaus félagsstarfsemi sem færði fólk saman fyrir smá spennu og félagsskap. Fyrstu nútímaspilavíti Kína birtust í þeim hafnarborgum sem höfðu milliríkjasamning og á erlenda landnámssvæði Shanghai. Hin nýstofnsetta kommúnistastjórn bannaði allar tegundir fjárhættuspila árið 1949, sem leiddi til óopinberrar starfsemi þangað til fyrir 20 árum, þegar hinu núverandi ríkislottói var hrundið af stað.
Þó að fjárhættuspil séu orðin vinsæl afþreying í Kína, eru aðeins nokkrar tegundir leyfðar í dag, á meðan restin er bönnuð. Þessi stefna hefur nú valdið því að fleiri ferðast til annarra landa þar sem fjárhættuspil eru leyfð auk þess sem útbreiðsla ólöglegrar starfsemi hefur aukist, til dæmis veðmál á netinu, óopinber spilavíti og sala og kaup á einkalottóum. Til að bæta svo aðeins ofan á ruglinginn leyfir Kína fjárhættuspil í hinu sérstaka stjórnarsvæði Macao, þar sem iðnaðurinn skilar af sér yfir 40% af vergri landsframleiðslu. Andspænis þessu virðast tilraunir miðstjórnarinnar til að sporna gegn ólöglegum fjárhættuspilum dauðadæmdar, þar sem þær skortir tilföng fyrir áframhaldandi herferðir gegn bransa sem alltaf stendur aftur upp.
Ríkisvelferðarlottó
Kína heimilar svokallað ríkisvelferðarlottó, en ágóði þess rennur til ýmissa íþrótta- og félagssamtaka. Hinsvegar er þessi löglega tegund fjárhættuspila, sem aðgengileg er 95% þjóðarinnar, aðallega stunduð af lágtekjufólki og skilar þar með ekki miklum hagnaði miðað við áætlaðan samanlagðan hagnað bæði löglegra og ólöglegra fjárhættuspila. Samt sem áður eyddu Kínverjar yfir 9 milljónum evra árið 2005 í þessi félagsvelferðarlottó – meira en nokkru sinni fyrr í tuttugu ára sögu lottósins.
Kínverjar eru almennt mikið fjárhættufólk sem heldur mikið upp á þessa starfsemi. Mahjong leikjastaðirnir, sem eru á víð og dreif í stórborgum landsins, og sem yfirvöld hafa lokað augunum fyrir, eru sönnun fyrir vaxandi áhuga þess að spila með áhættufé. En á meðan spilafíkn Kína eykst, valda ófullkomnar lagasetningar og vægar refsingar ríkisstjórnarinnar því að hún missir af mestum þeim fjármunum sem þegnarnir eyða í fjárhættuspil árlega. Árið 2005 var hagnaður ríkislottósins í Kína tíu sinnum minni en hagnaður ólöglegra fjárhættuspila, sem þýðir að ríkisstjórnin myndi græða verulega á lögleiðingu þeirra. Samkvæmt China Daily er líka 15-falt sú upphæð sem varið er í ríkislottói Kína eytt í spilavítum erlendis.
En hvora leiðina væri best að fara? Að lögleiða fjárhættuspil og hætta á þær félagslegu afleiðingar sem hlotist geta af því, eða herða takið á þessum leikjum jafnvel enn meir, sem gæti verið dauðadæmt ef hugsað er út í alla þá innvortist spillingu sem ríkisstjórnin þarf nú þegar að kljást við. Árið 2005 var sett af stað allsherjar herferð í tilraun til að hreinsa ímynd kommúnistaflokksins, sem hafði verið smánuð af röð fjárdrátta og fjársvika. Yfir 4.000 fjárhættuspilarar voru handteknar meðan á herferðinni stóð.
Vaxandi áhugi

Hugsanlegt er að Kína leyfi fleiri tegundir fjárhættuspila í framtíðinni. (Mynd: Morguefile)Áður en Kína tileinkaði sér strangari stefnur varðandi vegabréfsáritanir, var auðugt viðskiptafólk og embættisfólk tíðir gestir í spilavíti hinum megin landamæranna, í Norður-Kóreu eða Macao. Það gat auðveldlega fengið eins eða tveggja daga vegabréfsáritun. Á þessu slaknaði þó fljótt eftir tilkomu nýju stefnunnar sem krafðist þess að skrár skyldu haldnar yfir alla þá sem færu yfir landamærin.
En þessi tilhneiging yfirstéttarinnar var til marks um það sem koma skyldi. Þar sem auðæfi Kínverja aukast eru margir venjulegir íbúar nú farnir að fara með pening sinn í spilavíti utan Kína. Í Las Vegas, til dæmis, er meira en helmingurinn af eyðslusömustu spilurum spilavítanna Kínverjar.
Kínverjum þykir fjárhættuspil spennandi félagsathöfn Leikur með áhættufé hefur löngum talist félagsathöfn sem færir fólk saman. Frá stofnsetningu nútímafjárhættuspilanna hafa Kínverjar, eins og flestir í heiminum, átt sífellt auðveldara með að leggja fé sitt undir í von um að vinna sér inn auðveldan pening – það er jú mannlegt eðli. En til er söguleg ástæða sem gæti útskýrt hrifningu Kínverja á fjárhættuspilum.
Hagfræðiprófessor einn við Tækniháskólann í Peking ku hafa sagt að þúsund ár af kúgun og undirgefni í stigskiptu keisarakerfi virðist hafa innrætt kínverska fólkið með viljanum til að brjóta gegn staðlinum. Það vildi skapa sín eigin örlög með því að kappkosta við að verða eins ríkur og mögulegt er á eins stuttum tíma og mögulegt er, og helst án erfiðisvinnunar sem það krefst yfirleitt.
Framtíðin?
Á meðan Kína er enn ekki visst hvort það eigi að lögleiða fleiri tegundir af fjárhættuspilum á sitt umráðasvæði, stendur það einnig frammi fyrir tölvugerðum óvini, sem tekur á sig lögun falsaðra lottóvefsíða sem hóta að grafa undan lottókerfi ríkisins. Til að yfirbuga þennan óvildarmann var sala á netlottómiðum bönnuð í byrjun 2008. Samkvæmt sérfræðingum kom aðgerðin til vegna öryggisvandamála, sem gerðu kaupendum erfitt að greina í sundur löglegar og ólöglegar lottóvefsíður, en sumar fölsuðu síðanna náðu að stæla útlit ríkislottósíðanna af mikilli lagni.
Þrátt fyrir allt það slæma býður netmarkaðurinn upp á stórt tækifæri fyrir ríkisstjórnina að auðgast. Til þessa hafa engar ákvarðanir verið teknar varðandi lögleiðingu fjárhættuspila í Kína. Hinsvegar hafa verið óljós merki um að Kína sé að hallast meira að þeim möguleika að auka frelsið á markaðnum að einhverju leyti, að það myndi leyfa fleiri lottó, auk hestreiða og spilavíta.
En áður en Kína getur lögleitt fleiri tegundir af fjárhættuspilum þarf það að bæta reglugerðir sem varða fjárhættuiðnaðinn. Árið 2008 gaf Kína út fyrstu reglugerðirnir sem börðust gegn lottósvikum og byggði á reglugerðum annarra landa. Samkvæmt lottósérfræðingum hefur sú staðreynd að Kína fór að hlutunum í öfugri röð, þ.e.a.s. kom á lottókerfinu áður en að það setti á lög sem stjórnuðu því, skapað heilmikil vandamál fyrir þjóðina.
En ef og þegar þetta gríðarstóra og fjölmenna land ákveður að auka frelsið í fjárhættuspilum, verða alþjóðleg fjárhættufyrirtæki svo sannarlega tilbúin að skerast í leikinn!
Heimildir: Wikipedia, LA Times, Researchandmarkets.com
Höfundur: Stina Björkell
Þýðandi: Linda Sigurðardóttir








