Febrúar 2010

Mynd: Radio86
Mynd: Radio86

Mánuður tígrisdýrsins byrjar þann 4. febrúar, sem markar einnig upphaf nýs sólarárs tígrisdýrsins. Hátíðahöld fyrir kínverska nýárið eiga sér stað í byrjun nýja ársins, þann 14. febrúar 2010, sem einnig er Valentínusardagurinn.

Hvort sem það er kínverska nýárið eða Valentínusardagurinn, er ástæða til að fagna. Venjulega standa nýárshátíðahöldin yfir þar til tunglið er fullt, eða í fimmtán daga. Nú á dögum taka Kínverjar sér þó styttra frí. Á sjöunda degi tunglársins er einnig afmælishátíð allra. Þann dag ertu sagður vera orðinn ári eldri. Þannig að allir verða ári eldri í upphafi nýja ársins. Sannkallað stórafmæli! Kínverjar halda líka upp á afmæli á tungldegi fæðingar, jafnt sem sólardeginum.

Mánuður tígrisdýrsins er fyrsti mánuður vortímabilsins, tími nýs vöxts og oft táknrænn fyrir nýja rómantík. Tré byrja að laufgast og blóm springa út og í dýraríkinu er þetta tími tilhugalífsins. Framorka vorsins getur einnig verið gagnleg þegar hleypa á nýjum verkefnum og áformum af stað.

Nú er orka tígrisdýrsins tvöföld, þar sem að ár tígrisdýrsins fylgir á hæla tígrisdýramánaðarins. Hin ríkulega tígrisdýraorka getur ýtt þér áfram eftir leti jarðorkunnar síðastliðins uxaárs. 2010 er ár málmtígrisdýrsins og kemur málmorkan til móts við hina yfirgnæfandi viðarorku í tígrisdýrinu þannig að hægt sé að móta áætlanir. Febrúar er mánuður jarðartígrisdýrsins, svo nú er hægt að draga himinháu markmiðin aftur niður á jörðina. Mun nýja tunglið á Valentínusardaginn og upphafi nýja ársins verða hvetjandi tími fyrir ástina og rómantíkina í mánuði tígrisdýrsins? Mun tvöfalda tígrisdýrið hjálpa þér að byrja nýja árið eins og þú hafðir hugsað þér? Smelltu á dýramerkið þitt til að komast að því hvað þessi mánuður ber í skauti sér!

Bookmark and Share

Höfundur: Ting-Foon Chik
Þýðandi: Linda Sigurðardóttir