Miklir þurrkar í Yunnan héraði
Verstu þurrkar í 60 ár hrjá nú Yunnan hérað í suðurhluta Kína og skortir milljónir manns þar drykkjarvatn. Einnig hafa þurrkarnir áhrif á orkuframleiðslu og stuðlað að skógareldum, skv. frétt CRI.
Tap vegna uppskerubrests er áætlað að sé 6.5 billjón yuan (694 milljón Evrur). En héraðsyfirvöld hafa áætlað 389 millón yuan (41.5 milljón evrur) í neyðaraðgerðasjóð, segir Zhou Yunlong, yfirmaður vatnsauðlindaskrifstofu héraðsins.
Hingað til hafa 4.25 milljón manns, 2.4 milljón búfjár og 733 hektarar af uppskeru fengið tímabundna lausn með aukavatnsdreifingu í héraðinu.
Á sama tíma eru 4.9 milljón íbúa og 3.3 milljón búfjár án sérstakrar aðstoðar að kljást við vatnsskortinn og áhrif hans.
Tveir slökkviliðsmenn særðust á sunnudag þegar þeir börðust við elda í úthverfi Kunming, aðalborgar umdæmisins. Sem stendur er hvatt til allra varúðarráðstafana til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu elda.
Iðnstarfsemi á svæðinu reynir einnig að halda sér gangandi. Samkvæmt Wang Jinxian, fulltrúa orkuveitunnar Huaneng Lancang River Hydropower Co Ltd, getur áframhaldandi vatnsskortur haft áhrif á rafmagnsframleiðslu á svæðinu.
Yfir 2 milljón hektarar af uppskeru, um 82 prósent flatarmáls svæðisins, verða fyrir áhrifum vatnsskortsins, skv. frétt Cri. Um 534.600 hektarar uppskeru hafa skemmst. Búist er við að uppskera næsta sumars verði um 40 prósentum minni en í meðalári.
Veðurspár sjá enga regndropa í kortunum næstu daga.
Heimildir: CRI







