Fimm ára fangelsi fyrir rannsóknir á hruni skólabygginga

Kínverskur aðgerðarsinni, sem tók til við að rannsaka hvort léleg byggingartækni væri orsök fyrir hruni þúsunda skólabygginga í jarðskjálftanum í Sichuan héraði árið 2008, hefur nú verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir áróðursskrif, samkvæmt AFP fréttastofunni.

Umhverfissinninn og rithöfundurinn Tan Zuoren, hefur áður verið kærður fyrir að „rífa niður og rýra vald ríkisins“ eftir að hann birti greinar á internetinu þar sem hann gagnrýndi meðhöndlun kínveskra stjórnvalda á Tiananmen málinu árið 1989 á Torgi hins himneska friðar, segir einn af lögfræðingum hans, Pu Zhiqiang.

Tan var handtekinn þegar hann var að spyrjast fyrir um dauða þúsunda barna eftir að skólar þeirra hrundu í jarðskjálftanum 12. maí 2008. Um 88.000 manns létust í hamförunum.

Pu sagði AFP að Tan hafi verið fangelsaður vegna ákæra tengda Tiananmen málsins, en ekki hafi verið bornar upp kærur vegna jarðskjálftarannsóknarinnar.

Samkvæmt Amnesty International, er rík ástæða til að ætla að ástæða handtökunnar sé tengd sjálfstæðri rannsókn Tans á jarðskjálftamálinu.

Tan, sem hefur neitað öllum ásökunum, hefur í hyggju að kæra dóminn, segir lögfræðingur hans.

Margir foreldrar barna sem létu lífið grafin undir skólabyggingum, hafa krafist rannsókna á því hvort spilling eða mistök hafi átt þátt í að skólabyggingar hrundu í massavís með hörmulegum afleiðingum.

Amnesty International hefur gagnrýnt dóminn, kallað hann ósanngjarnan og krefst þess að Tan verði látinn laus, segir í frétt AFP.

Bookmark and Share

Heimildir: AFP