Mjólkurhneykslið stækkar
72 tonn af mjólkurdufti, sem talið er að séu melamínmenguð, hafa verið gerð upptæk af kínverskum yfirvöldum. Önnur 100 tonn eiga enn eftir að vera gerð upptæk, samkvæmt ríkisfjölmiðli þarlendis.
Talið er að mengaða duftið eigi upptök sín úr skammti sem afturkallaður var eftir að sex börn létu lífið og 300.000 önnur veiktust af honum árið 2008.
Melamín er efni sem notað er í framleiðslu plasts og áburðar, en getur látið matvörur líta út fyrir að vera með hærra próteininnihald.
Á laugardaginn lokuðu yfirvöld tveimur mjólkurfyrirtækjum í sjálfstjórnarhéraðinu Ningxia Hui, eftir að upp komst um sölu á menguðu mjólkurdufti.
Ningxia Tiantian mjólkurfyrirtækið var lokað eftir að 164 tonn af menguðu mjólkurdufti fundust. Fyrirtækið hafði fengið duftið frá öðru fyrirtæki sem hluti af skuldagreiðslu.
Vörurnar hafa verið seldar til fimm verksmiðja í Innri Mongólíu, Fujian og Guangdong, samkvæmt China.org.cn.
Þar að auki fannst sælgæti með menguðu mjólkurdufti í Jilin héraði í gær.
Til þessa hafa 72 tonn verið gerð upptæk og reyna yfirvöld nú að rekja það sem eftir er af skammtinum.
Annað fyrirtæki, Ningxia Panda Dairy, var lokað vegna tengsla sinna við Shanghai Dairy, sem lokað var seint á síðasta ári, segir á fréttavef BBC.
Nýjasti fundurinn markar annan skammtinn af menguðum mjólkurvörum sem fundust í tíu-daga herferðinni sem hófst á mánudaginn í síðustu viku.
Í síðustu viku voru þrír handteknir vegna gruns um söluaðild í Shaanxi héraðinu.
Zhao Shuming, fulltrúi Ningxia Mjólkursamtakanna, sagði China Daily að mörg lítil fyrirtæki væru ekki með rétta tækjabúnaðinn til að kanna melamín í vörum sínum. Hann sagði einnig að sum fyrirtæki myndu halda menguðum vörum sínum úr matvöruverslunum þangað til viðamiklu rannsókninni lyki.
22 mjólkurfyrirtækjum, sem viðriðin voru hneykslið árið 2008, var skipað að greiða milljónir dollara í skaðabætur til fjölskyldna fórnarlambanna. Tveir voru teknir af lífi.
Cindy Yang, mjólkursérfræðingur í Shanghai, sagði í viðtali við Canadian Press að þetta nýjasta tilfelli væri ólíklegt til að skaða iðnaðinn að sama marki og árið 2008.
,,Þessi fyrirtæki eru frekar lítil,” sagði hún, og bætti því við að stærstu mjólkurfyrirtæki landsins hefðu innleitt strangari öryggisreglur eftir hneykslið 2008, og þar af leiðandi hækkað vöruverð sitt.
Heimildir: China Daily, China.org.cn, BBC, Business Week








