Kínverjar senda mikinn fjölda íþróttafulltrúa til Vancouver
Kína sendir 182 manns, þar af 91 íþróttamenn, 30 konur og 61 karla, á Vetrarólympíuleikana í Vancouver í Kanada sem standa yfir frá 12 – 28 febrúar 2010.
Samkvæmt vefsíðu kínversku ólympíunefndarinnar (COC) er meðalaldur kínverska íþróttafólksins um 24 ár. Sá elsti, Zhao Hongbo, er 37 ára og sá yngsti er íshokkíkappinn Zhang Mangying, 16 ára.
Yfir helmingur íþróttamannanna er að fara í fyrsta sinn á Vetrarólympíuleika, en listskautaparið Shen Xue og Zhao Hongbo, ásamt tvíkeppniskonunni Liu Xianying mæta nú í fjórða skipti sem fulltrúar Kína á Vetrarólympíuleikum.
Kínverska íþróttafólkið mun keppa í fimm íþróttagreinum: á skautum, skíðum, í íshokkí, körling og tvíkeppni, sem skiptast í 10 undirflokka: skautahlaup á stuttum velli, listskauta, hraðskauta, freestyle-skíði, gönguskíði, alpagreinar, snjóbretti, íshokkí kvenna, körlinglið karla og kvenna og tvíkeppni, samkvæmt fréttinni. Þetta verður í fyrsta sinn sem Kína hefur eigið körlinglið á Ólympíuleikum. Íshokkí kínverskra kvenna verður einnig með í fyrsta skipti.
Zhao Yinggang, fulltrúi Vancouverfaranna segir að liðið stefni á að bæta enn betur árangur sem náðist í Turin á Ítalíu fyrir fjórum árum, þegar Kína vann tvö gull, fjögur silfur og fimm bronsverðlaun.
Heimildir: Vefsíða COC







