CRI opnar vefsíður á eistnesku og litháensku

Baltnesku blaðamennirnir.
Baltnesku blaðamennirnir.

Fyrstu eistnesku og litháensku vefsíðum CRI var opinberlega hleypt af stokkunum þann 8. febrúar í Peking.

Með gangsetningu nýju vefsíðanna hefur CRI Online, opinbera vefgátt China Radio International, þanið út starfsemi sína í 61 mismunandi tungumál, sem gerir það að stærsta netverkvangi með mestum fjölda tungumála í heiminum.

Upplýsingaskrifstofa þjóðþingsins og sendiráð viðkomandi landa í Peking sendu CRI hamingjuóskir og lofuðu fyrirhafnir þeirra og afrek varðandi kynningu á gagnkvæmum skilningi milli Kínverja og samtíðarfólks þeirra í Eistlandi og Litháen.

Nýju vefsíðurnar (http://ee.radio86.com og http://lt.radio86.com) munu bjóða upp á gríðarlegt magn myndbanda, útvarpsþátta, mynda og upplýsinga sem einblína helst á viðskipti, menningu, ferðalög og annað tengt Kína.

Síðan CRI Online var stofnað þann 26. desember árið 1998, hefur síðan tileinkað sér að því að þjóna netnotendum víðsvegar í heiminum á mismunandi tungumálum. Á undanförnum árum hefur áherslan verið á því að þenja út starfsemina og betrumbæta þjónustuna sem boðið er upp á.

CRI Online er nú orðið að fjölmála- og margmiðlunarverkvangi sem samanstendur af vefsíðum á 61 tungumáli og 18 útvarpsstöðum, sem miða að því að veita erlendum netnotendum þekkingu á Kína á sínu eigin móðurmáli.

Bookmark and Share

Heimildir: Radio86, CRI