Óskir um breytta fjölskyldustefnu virtar að vettugi
Kína hyggst viðhalda núverandi stefnu um mannfjöldaþróun til að tryggja lága fæðingartíðni, samkvæmt talsmanni þjóðarstofnunar fjölskyldumála í Kína.
Fulltrúi stofnunarinnar, Zhao Baige, lýsti þessu yfir á málþingi með fulltrúum 12 suðurhéraða Kína í Guangzhou síðasta fimmtudag.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar þrýstings um að slakað verði á einbirnisfjölskyldustefnu þar sem ýmis vandamál hafa komið upp vegna hennar. Núverandi fjölskyldustefna var sett á af kínverskum stjórnvöldum árið 1979.
Tveir fulltrúar þjóðþingsins, Dong Guang'an og Yin Zhiguo frá Henan héraði voru meðal þeirra sem lögðu fram tillöguna, þrátt fyrir að búast megi við að Henan hérað verði fyrsta kínverska héraðið til að telja yfir 100 milljón manns á árinu 2010.
Yin Zhiguo studdi tillöguna með tilvísun í það að hver hjón sem fædd eru eftir níunda áratug síðustu aldar séu oft undir miklu álagi að sjá fyrir fjórum eldri foreldrum sínum.
Dong og Yin, ásamt öðrum, hvöttu til þess að fleiri héruð setji lög sem leyfi pörum þar sem báðir aðilar eru einbirni að eignast tvö börn.
Zhang, kennari í grunnskóla í Kaifeng í Henan héraði, segir að nemendur hennar eigi bágt með að skilja hugtök eins og föðurbróðir og móðurbróðir þar sem engir slíkir ættingjar séu til. Á sama tíma eiga einbirni sem þessi það sameiginlegt að vera viðkvæm og ófær um að takast á við vandamál.
Hingað til hafa 30 héruð í Kína samþykkt að í lagi sé að eignast tvö börn ef bæði móðirin og faðirinn eru einbirni. Henan hérað, þar sem 7 prósent kínverja búa er þó ekki meðal þessara héraða.
Heimildir: CRI







