Nýársfagnaður í söfnum Peking-borgar

Vorhátíðin, sem markar byrjun nýja ársins samkvæmt tungldagatalinu, er afar mikilvæg hátíð í kínverskri hefð. Hún hefst þann 14. febrúar.

Peking-búar geta nú fagnað þessu sérstaka tilefni á 130 söfnum borgarinnar. Um 300 sýningar standa þeim til boða meðan á hátíðinni stendur, uppfullar af menningarlegum atburðum.

Samkvæmt Cui Guoming, varaformanni héraðsstjórnvalda menningararfleifðar, segir að kínverska leiðin til að fagna nýja árinu hefur breyst samhliða öllu samfélaginu.

,,Breytingar hafa átt sér stað varðandi það hvernig við höldum upp á vorhátíðina nú á dögum, og fólk er spenntari fyrir því að taka þátt í menningartengdum atburðum. Er þetta á ábyrgð safnanna. Til að mæta kröfum borgaranna, munum við bjóða upp á ýmis konar starfsemi sem höfðar til allra aldurshópa,” sagði Cui í viðtali við CRI.

Menningarviðburðunum verður skipt upp í þrjá flokka: sýningar um kínverska menningu; fyrirlestrar og sögulegar þjóðhefðir; og starfsemi, eins og hofleiðangrar og uppákomur sem borgarbúir geta tekið þátt í.

Á stærsta safni Peking geta gestir virt fyrir sér fjöldann allan af menningargripum, notið kínverskrar óperu og lært að hnýta kínverska hnúta, skera út pappír og sauma lítil tígrisdýr til skreytingar.

Heimamenn telja að þetta sé góð leið til að undirstrika kínverskar hefðir á þessari mikilvægustu hátíð ársins.

,,Mér finnst þetta mjög gott, og svo er þetta nýjung. Að fagna vorhátíðinni með því að fara á söfn er góð leið til að minnka fjarlægðina milli heimamanna og safna, og gefur fólki fleiri tækifæri á að læra um og upplifa kínverska menningu,” sagði Peking-búinn Diao Songquan.

Bookmark and Share

Heimildir: CRI