Alþjóðaviðskiptastofnunin fær kvörtun vegna álagningar ESB á skóinnflutning frá Kína
Kínverjar sendu á fimmtudaginn kvörtun til Alþjóðaviðskiptastofn-unarinnar (WTO) vegna innflutnings-takmarkandi aðgerða Evrópusambandsins gegn hugsanlegu undirboði Kína og Víetnam á skóm í Evrópu.
Málið mun verða tekið upp undir ágreiningskerfi Alþjóðaviðskipta-stofnunarinnar, segir í fréttatilkynningu á vefsíðu viðskiptaráðuneytis Kína. Þetta er fyrsta skrefið í allt að 60 daga ferli. Ef engar sáttir nást, geta Kínverjar óskað eftir úrskurði um málið.
Síðastliðinn desember ákvað framkvæmdastjórn ESB að framlengja um 15 mánuði, innflutningstolla sem settir voru árið 2005 á innflutning á leðurskóm frá Kína og Víetnam vegna gruns um undirboð, skv. fréttamiðlinum Xinhua. Tollurinn er 16.5 prósent fyrir skó frá Kína og 10 prósent fyrir víetnamska skó.
Þetta er, samkvæmt Yo Jian, talsmanni viðskiptaráðuneytisins, brot á alþjóðlegum viðskiptareglum.
„Rannsókn ESB á undirboði og ákvörðun um aðgerðir stríða gegn reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og grafa undan hagsmunum og rétti kínverskra fyrirtækja“, hefur Xinhua eftir Yao.
Evrópusambandið ver innflutningstollana sem ”réttmætan gjörning”, samkvæmt AFP.
„Aðgerðir gegn undirboði snúast ekki um aðgangstakmarkanir, þær eru gegn ósanngjörnum viðskiptaháttum“, segir John Clancy talsmaður viðskiptalífs hjá ESB.
Kínverskir skóframleiðendur hafa neitað ásökunum um undirboð og krefjast þess að Alþjóðaviðskiptastofnunin greiði úr málinu.
Á sama tíma og stjórnhluti ESB berst gegn ósanngjörnum viðskiptum frá Kína, styður Evrópska Fótbúnaðarbandalagið (EFA) málstað Peking þar sem fyrirtæki innan þess framleiða mikið af skóm í Kína sem tollurinn nær yfir.
Í yfirlýisingu frá EFA segir „Það er kaldhæðnislegt, að þessi aðgerð kemur verst við evrópsk fyrirtæki og neytendur“, skv. frétt AFP.
Heimildir: Xinhua, China Daily, AFP








